Enn pattstaða á Álftanesi


Eftir að Álftanes fór í greiðsluþrot haustið 2009 varð flestum ljóst að ekki var að óbreyttu rekstrargrundvöllur fyrir rekstri sveitarfélagsins.

Fjárhaldsnefnd sem ráðherra skipaði fór í verulegan niðurskurð á rekstri sveitarfélagsins sem nam yfir 100 millj.  á ári, um 8% af útgjöldunum. Skattar og álögur á íbúa voru einnig hækkaðir um svipaða upphæð.

Þá var farið í sameiningarviðræður við Garðabæ en strax var ljóst að Garðabær var ekki tilbúinn til sameiningar á þeirri stundu.

Öll framboð lofuðu íbúum Álftaness sameiningu strax eftir kosningar.  Eftir kosningar bauð Reykjavík Álftnesingum að sameinast Reykjavík en ný bæjarstjórn Álftaness hafnaði þeirra boði og vildi aðeins viðræður við Garðabæ.

Áfram var haldið að ræða við Garðabæ þó engin sameining væri á döfinni við Garðabæ nema forsendur breyttust.

Nú liggja fyrir samningar sem fjárhaldsstjórnin hefur gert við stærstu lánadrottna um afskriftir á um 30% skulda með því skilyrði að búið verði að samþykkja sameiningu Álftanes við eitthvert sveitarfélag í almennri  kosningu fyrir 15. maí næstkomandi.

Þrátt fyrir þessa samninga fjárhaldsstjórnar ætlar bæjarstjórnin ekki að undirbúa sameiningakosningar fyrir 15. maí.  Öll bæjarstjórnin virðist vilja sitja áfram sem lengst.

 
Sú míta að bygging sundlaugarinnar hafi sett sveitarfélagið í þrot er æði útbreidd en kolröng.  Álftanes hefur enn ekki greitt til byggingar sundlaugarinnar en fékk þess í stað yfir 300 millj. í reiðufé vegna sölu íþróttarhússins.  Þannig frestaði sundlaugin fjarþroti Álftanes um eitt ár.

Ákvörðun sveitarfélagsins um mikla og hraða uppbyggingu árið 2002 sem ákveðið og stýrt var af sjálfstæðismönnum gerði sveitarfélagið gjörsamlega ósjálfbært.

Langstærsti útgjaldaliður allra sveitarfélaga er rekstur skóla, leikskóla og tómstundastarfsemi barna og unglinga.

Hlutfall grunnskólabarna miðað við íbúafjölda sýnir okkur að Álftanes getur ekki verið sjálfbært ef bjóða á íbúum sömu þjónustu og er í boði í nágrannasveitarfélögum.

Álftanes, grunnskólabörn 18,9% af íbúum

Reykjavík, grunnskólabörn 10,4% af íbúum

Garðabær, grunnskólabörn 12,7% af íbúum

Rekstur kostnaðasömustu málaflokkana á Álftanesi er þannig yfir 80% stærri en í Reykjavík og um 50 % stærri en í Garðabæ.

Ef Álftanes hefði strax gengið til sameiningar við Reykjavík hefðu aukaálögur og niðurskurður á ibúana ekki kostað íbúa Álftanes 80 -150 milljónir á ári eða að meðaltali  30 til 60 þúsund krónur á íbúa á ári. Það er sú fórn sem íbúar leggja fram í þeirri von bæjarstjórnar að sameinast síðar Garðabæ.

Íbúar dæma um hvort sú fórn er ásættanleg.

Kristján Sveinbjörnsson

Fv bæjarfulltrúi


mbl.is Íbúafundur fyrir lok mánaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég hef skilið Ögmund og sameiningarviðræður við Garðabæ að þær munu eiga sér stað í vor eða í sumar! Hef ekki hugmynd um hvað þinn pistill fjallar um?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 5.4.2012 kl. 03:22

2 Smámynd: KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON

Sameiningaviðræður hafa staðið yfir á milli Álftaness og Garðabæjar í um tvö og hálft ár án þess að hafa skilað neinu. Á meðan greiða íbúar Álftaness verulegar greiðslur í viðbótarskatta sem aðrir greiða ekki.  Í samningum fjárhaldsstórnar við lánadrottna um niðurfellingu skulda var sett skilyrði um sameiningakosningar fyrir 15. maí næstkomandi. Sama skilyrði er einnig gagnvart sérstökum greiðslum úr jöfnunarsjóði/ríkissjóði. Um þessi atriði hafa íbúar ekki verið upplýstir um og bæjarstjórnin frestar og frestar að halda sameiningakosningar. Þá er vitað að veruleg andstaða er innan bæjarstjórnar Garðabæjar til sameiningar við Álftanes og stór hluti íbúa Garðabæjar er andvígur ofnannefndri sameiningu. Þá er verulegur áhugi meðal íbúa Álftaness með að sameinast frekar Reykjavík en bæjarstjórn Álftanes neitar að skoða þann möguleika. Í seinni hluta pistilsins er reynt að skýra út meginástæðu þess að Álftanes er í fjárhagsvandræðum.

KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON, 5.4.2012 kl. 08:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dægurmál og skoðanaskipti

Höfundur

KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON
KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • aska10_5.tiff
  • ...102_8379

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband